ÞAÐ ER MIKIÐ VATN Á FERÐ Í GUÐMUNDARLUNDI

Vegurinn upp í lundinn hefur verið lokaður neðan við hesthúsin, þar sem hluti hans er ófær minni bílum og vatnsdýpt nær sums staðar allt að 80 cm.

Vegurinn er mjög viðkvæmur um þessar mundir, afar holóttur og þolir ekki mikla umferð. Umferð við þessar aðstæður getur valdið verulegum skemmdum.

Því er ekki annað í stöðunni en að loka veginum á meðan rignir svona mikið, til að koma í veg fyrir frekari eyðileggingu – enda var hann orðinn nægilega illa farinn fyrir.