Björgvin Örn Eggertsson hlaut hvatningaverðlaun skógræktar 2026

Hvatningaverðlaun skógræktar 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á Alþjóðlegum degi skóga þann 21. mars.

Er þetta í þriðja sinn sem verðlaunin eru afhent, en þau eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, fyrirtækja, félaga eða stofnana sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Markmið með afhendingu þeirra er að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

Nánar má lesa frétt á á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands: https://www.skog.is/hvatningarverdlaun-skograektar-2026-afhent/