Einn glæsilegasti minigolfvöllur landsins kemur vel undan vetri. Völlurinn er iðagrænn og fagur eftir rigningu síðustu daga og kylfingar ánægðir með ástand hans.
Þrátt fyrir smæð sína er hann einkar áhugaverður. Hann hentar jafnt byrjendum sem reyndari kylfingum. Líkur eru miklar á að ná holu í höggi í Guðmundarlundi.
Völlurinn stendur öllum opinn sem vilja njóta og þarf ekki panta eða bóka tíma því hann rúmar marga í senn.
Ekkert gjald er tekið fyrir að nota völlinn en hver og einn verður að taka með sér eigin golfkylfur og kúlur.
Minigolf völlurinn er sannkallaður sælureitur fyrir alla fjölskylduna sem er staðsettur stutt frá ys og þys bæjarins í yndislegri náttúru.
