Ársskýrsla Skógræktarfélags Kópavogs er á þessum aðalfundi félagsins 27. maí 2021 flutt fyrir rúm tvö ár, þ.e. frá aðalfundi 14. júní 2019 og fram á þennan dag, þar sem örlögin gripu inn í og ekki var framkvæmanlegt að halda aðalfund á árinu 2020.
Árið 2019 var félaginu og félagsmönnum viðburðaríkt. Félagið fagnaði hálfrar aldar afmæli og ákveðið hafði verið að aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, landssamtaka skógræktarfélaga, yrði haldinn í Kópavogi í umsjón Skógræktarfélags Kópavogs.
Að því var stefnt að umhverfissetrið að Leiðarenda 3 yrði tilbúið til notkunar um mánaðamótin ágúst– september en tafir á framkvæmdum við húsið settu strik í reikninginn og drógu því miður kraft úr fyrirhugaðri fræðslustarfsemi félagsins á árinu.
Sem fyrr áttum við gott samstarf við Kópavogsbæ. Í samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs voru gróðursettar um 13.000 trjáplöntur í Landgræðsluskóga og uppgræðslu í Selfjall ofan Lækjarbotna. Einnig var unnið við að kurla grisjunarvið, lagfærðir voru stígar og framkvæmd almenn umhirða í Guðmundarlundi.
Að þessum verkefnum komu námsmenn í atvinnuátaki eldri en 18 ára og fólk í atvinnuátaki frá velferðarsviði. Ungmenni frá Vinnuskóla Kópavogs tóku þátt í gróðursetningum en það var hluti af árlegri umhverfisfræðslu þeirra.
Frá Sambýlinu í Dimmuhvarfi komu íbúar og tóku þátt í ýmsum verkefnum í Guðmundarlundi, til að mynda stígagerð.
Grunnskólar Kópavogs fá ár hvert plöntur úr Yrkjusjóði til ræktunar í Skólaskógum á Vatnsendaheiði. „Markmið sjóðsins er að kosta trjáplöntun íslenskra skólabarna á grunnskólastigi á ári hverju“ stendur í skipulagsskrá Yrkjusjóðs. Með þessu er honum ætlað að kynna mikilvægi uppgræðslu, skógræktar og ræktunar almennt fyrir unga fólkinu í landinu og ala þannig upp ræktendur framtíðarinnar. Á árinu 2019 gróðursettu grunnskólabörn í Kópavogi undir handleiðslu Skógræktarfélags Kópavogs um 1.500 plöntur.
Undanfarin ár hefur verið haldinn vinnu- og fræðsludagur í Guðmundarlundi þar sem áhugasamir ræktendur hafa mætt og notið þess að stússast saman í garðinum part úr degi við beðahreinsun, plöntuskiptingar og gróðursetningar. Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í ræktun er viðburður þessi upplagt tækifæri til að læra til verka, skoða hönnun, staðsetningu og plöntuval en Skógræktarfélagið leggur til fagmenntað fólk í fræðslu og til leiðbeininga. Hermannsgarður er samvinnuverkefni Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Kópavogs og Garðyrkjufélags Íslands til minningar um Hermann Lundholm sem var garðyrkjuráðunautur bæjarins 1958-1989 og einn stofnenda Skógræktarfélags Kópavogs.
Að þessu sinni var Vinnu- og fræðsludagurinn í Hermannsgarði í Guðmundarlundi haldinn fimmtudaginn 25. júlí.
Líf í lundi er árlegur útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins sem haldinn var 22. júní. Á þessum degi er almenningur hvattur til þess að stunda hreyfingu, samveru og upplifa skóga og náttúru landsins. Skógar landsins hafa þjónað mikilvægu hlutverki á síðustu misserum til útivistar og líklega sjaldan verið nýttir jafn mikið að vetri og í ár. Áhrif þeirra á andlega og líkamlega heilsu landans eru nú hvergi vanmetin. Fjöldi fólks kom í Guðmundarlund í Kópavogi en boðið var upp á ýmis skemmtiatriði og leiki í skógarlundinum. Gróðursettar voru plöntur, grillaðar pylsur, steiktir klattar og boðið upp ketilkaffi að gömlum skógarsið.
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, sem eru landssamtök skógræktarfélaga, var haldinn 30. ágúst – 1. september. Að þessu sinni var fundurinn haldinn í Kópavogi og var Skógræktarfélag Kópavogs gestgjafi fundarins, en það fagnaði þá 50 ára afmæli.
Á fundinum var boðið upp á fjölbreytt fræðsluerindi og farið í vettvangsferðir, þar sem skógarreitir og gróðurlendur í Kópavogi voru skoðuð.
Eftirfarandi fræðsluerindi voru flutt á aðalfundinum.
· Kópavogur með grænum augum - Friðrik Baldursson
· Loftslagsskógar - Reynir Kristinsson
· Birkikynbætur - leiðin að Heklu - Þorsteinn Tómasson
· Avenza app GP - Björn Traustason
· Skógrækt í 50 ár - Kristinn H. Þorsteinsson
· Arboristar-nýir möguleikar í trjáhirðu - Orri Freyr Finnbogason
Dagskráin var öllum opin.
Umhverfissetrið í Guðmundarlundi í Kópavogi var vígt við hátíðlega viðhöfn 30. ágúst.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og Kristinn H. Þorsteinsson formaður Skógræktarfélags Kópavogs tóku til máls við athöfnina. Þá gróðursettu börn úr Kópavogi tré í lundinum við hið nýja setur með dyggri aðstoð forseta Íslands, bæjarstjóra og fulltrúa Skógræktarfélags Kópavogs.
Umhverfissetrið verður meðal annars nýtt af leik- og grunnskólum í Kópavogi en stefnt er að því að í Guðmundarlundi verði boðið upp á fyrsta flokks aðstöðu til útikennslu þar sem lögð verður sérstök áhersla á náttúrulæsi, umhverfis- og náttúruvernd og áhrif loftslagsbreytinga á umhverfið. Á vef Kópavogsbæjar er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra að Umhverfissetrið sé í samræmi við þá áherslu sem bærinn hafi lagt á útikennslu í skólastarfi í Kópavogi en í bænum séu útikennslustofur við alla skóla. „Þá er áhersla á umhverfismál og áhrif loftslagsbreytinga mikilvæg og í takt við innleiðingu bæjarins á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ er haft orðrétt eftir Ármanni á vígsludeginum.
Haldnir voru 14 stjórnarfundir og 6 vinnufundir á árinu sem var aukning frá fyrri árum og var ástæðan aukin vinna vegna aðalfundar Skógræktarfélags Íslands.
Stjórn Skógræktarfélagins var þannig skipuð eftir síðasta aðalfund 2019:
· Kristinn H. Þorsteinsson formaður
· Kristján Jónasson varaformaður
· Hannes Siggason gjaldkeri
· Þröstur Magnússon ritari
· Jón Jakob Jóhannsson meðstjórnandi
· Hrefna Einarsdóttir varamaður í stjórn.
· og framkvæmdastjóri Bernhard Jóhannesson
Þegar árið 2020 rann upp horfði stjórn félagsins til bjartra tíma. Húsnæðið í Leiðarenda 3 var svo gott sem tilbúið og var í undirbúningi að auglýsa og leigja út húsnæðið til að standa undir ýmsum kostnaði sem því fylgir að reka hús og útivistarsvæði. Svo kom Covid sem breytti öllu. Fyrirhuguðum aðalfundi félagsins sem halda átti í lok mars var slegið á frest.
Bernhard Jóhannesson, starfsmaður félagsins, sagði stöðu sinni lausri í upphafi árs 2020. Félagið var ekki með starfsmann en þá kom fram tillaga frá stjórnarmanni að leitað yrði til formanns félagsins, Kristins H. Þorsteinssonar, hvort hann væri hefði áhuga á að skipta um vettvang og taka að sér stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Kristinn ákvað að segja sig frá öðrum störfum og hóf störf í lok apríl.
Sú breyting varð á stjórn félagsins að Kristinn vék úr sæti formanns og undirritaður Kristján Jónasson tók sæti hans, Hrefna Einarsdóttir tók sæti varaformanns en aðrir hafa haldið sinni stöðu.
Í upphafi maímánaðar voru fjöldamörk samkomubanns hækkuð úr 20 í 50 manns.
Það var eins og opnað hefði verið fyrir flóðgáttir því í Guðmundarlund lagði aukinn fjöldi fólks leið sína til að stunda útiveru og lýðheilsu. Svæðið hefur sterkt aðdráttarafl enda hefur það upp á margt að bjóða. Það iðaði allt af lífi en í byrjun ágúst kom högg, ný Covid bylgja reið yfir og það dró snögglega úr komu gesta. Það ástand stóð ekki lengi því jafnt og þétt snéri fólk til baka þegar á leið og aðsóknin jókst aftur dag frá degi en leiga á grillstæðum hvarf nánast alveg. Það er auðvelt að stunda útiveru og bæta lýðheilsu í Guðmundarlundi þó margir séu í lundinum á sama tíma.
Gróðursetning grunnskólabarna í Kópavogi er reglulegur þáttur í skólastarfinu en ár hvert fá þau plöntur úr Yrkjusjóði til ræktunar í Skólaskógum á Vatnsendaheiði. Persónuleg reynsla og kynni nemanda af þessu starfi er fjársjóður sem á eftir að skila vöxtum þegar fram líða stundir. Á árinu 2020 gróðursettu grunnskólabörn í Kópavogi undir handleiðslu Skógræktarfélags Kópavogs um 1.600 plöntur en 8 skólar sóttu um að fá plöntur úr Yrkjusjóði þetta árið. Að lokinni gróðursetningu og fræðslu fóru börnin eins og áður niður í Guðmundarlund þar sem þau fengu útrás fyrir orku, gleði og skapandi leiki. Að lokum þáðu þau hressingu og hlóðu upp orku á ný. Reiknað er með því að þetta verkefni haldi áfram óbreytt.
Samstarf milli Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs vegna sumarstarfa 2020 var með ágætum eins og undanfarin ár. Aukið atvinnuleysi á vormánuðum var talvert einkennandi fyrir íslenskan vinnumarkað og var helsta ástæðan aukin eftirspurn ungs fólks eftir atvinnu þegar skólum lauk.
Skógræktarfélagið tók á móti fólki sem var í sumarvinnu hjá Kópavogsbæ, útdeildi verkefnum og annaðist fræðslu og verkstjórn. Þeir hópar sem komu til starfa voru ungmenni í atvinnuátaki námsmanna eldri en 18 ára, ungt fólk frá Vinnuskóla Kópavogs en það var hluti af umhverfisfræðslu þeirra. Einnig voru við störf í atvinnuátaki fólk frá Velferðarsviði Kópavogs sem komið er af léttasta skeiði og íbúar frá íbúðarkjörnum í Dimmuhvarfi og Austurkór. Undirbúningur undir áframhaldandi samstarf á svipuðum nótum er þegar hafinn.
Veðurfar sumarsins var með ágætum, hæfilega blautt, passlega vindasamt og þægilega heitt.
Gróðursettar voru um 35.000 trjáplöntur í Landgræðsluskóga og uppgræðslu í Selfjall ofan Lækjabotna. Einnig var unnið við að lagfæra stíga, laga bekki og borð, pússa og mála og þrífa grill og fjarlægja rusl, slá og hreinsa illgresi úr beðum og framkvæma almenna umhirðu í Guðmundarlundi svo eitthvað sé nefnt. Gróðursettir voru um 200 runnar af ýmsum tegundum í skógarbotn lundarins og er ætlunin að styrkja hann enn frekar með áframhaldandi gróðursetningum og sáningum runna og fjölæringa.
Vonir standa til að það verði hægt að koma niður 35.000 plöntum í Selfjall á árinu 2021.
Gras á flötunum í Guðmundarlundi kom mjög illa undan vetri og var kalið á mjög stórum svæðum. Hafist var strax handa að vori við viðgerðir, flatirnar rakaðar, losað um svörðinn, sáð og borið á. Var þetta gert þrisvar sinnum yfir sumarið en grasið átti mjög erfitt uppdráttar vegna gífurlegrar aðsóknar gesta í Guðmundarlundi. Það er alveg ljóst að það þarf að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir til að ræsa fram flatir í Guðmundalundi því þegar vatn leggst yfir svæðið og frýs þá kafnar grasið undir. Þetta er yfirstíganlegt verkefni en kostar vinnu og talsvert fé.
Eldri borgurum í Kópavogi var boðið í Guðmundarlund miðvikudaginn 1. júlí. Félagsmiðstöð eldri borgara og Félag eldri borgara í Kópavogi stóðu fyrir ferðinni. Skógræktarfélag Kópavogs og Kópavogsbær tóku á móti gestunum í Guðmundarlundi. Það var glatt á hjalla enda miklir gleðipinnar mættir sem þáðu léttar veitingar og dilluðu sér og sungu undir taktföstum leik harmonikkuleikara part af degi. Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, og formaður eldri borgara, Ragnar Jónasson, ávörpuðu gesti og létu gamminn geisa um það sem þeim var þá efst í huga. Það er mikill hugur hjá öllum sem að þessu komu að endurtaka leikinn og hefur húsið að Leiðarenda verið bókað fyrir móttöku þann 3. júní 2021.
Þann 10. júní efndu félagar úr Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og Skógræktarfélagi Íslands til gróðursetningarferðar í Áramótaskóg í Selfjalli í Lækjarbotnum.
Rótarskot eru ný leið Slysavarnafélagsins Landsbjargar til að styrkja sjálfboðastarf björgunarsveitanna í landinu. Um áramótin bjóða björgunarsveitirnar upp á sölu Rótarskots fyrir þá sem ekki vilja kaupa flugelda eða kaupa sitt lítið af hverju. Hvert Rótarskot gefur af sér tré sem gróðursett er með stuðningi Skógræktarfélags Íslands í nýjan Áramótaskóg Slysavarnafélagsins.
Af þessu tilefni voru 4.000 birkitré gróðursett í norðurhlíðar Selfjalls sem er í umsjón Skógræktarfélags Kópavogs en félagið annaðist undirbúning og stýrði verkefninu í Selfjalli ásamt Skógræktarfélagi Íslands. Sennilega munu þau Rótarskot sem seld voru um síðustu áramót verða gróðursett í Selfjall.
Ferðafélagið Útivist og Skógræktarfélag Kópavogs hófu samstarf á árinu. Ferðafélagið tók reit í fóstur í austurhlíðum Selfjalls í Lækjarbotnalandi. Markmiðið er að vinna að fjölbreyttri landgræðslu og gróðurrækt á svæðinu, setja upp bekki og fegra svæðið á annan hátt sem mun í framtíðinni nýtast félögum í Útivist auk gesta og gangandi.
Þetta verkefni er tilkomið vegna fjárgjafar Jóns Ármanns Héðinssonar til Útivistar og á að nýtast til skógræktar og fegrunar lands. Þeim var úthlutað reitur þar sem áður stóð um áratugaskeið skáli sem var í eigu ferðafélagsins Farfugla meðan það var og hét og kallaðist Heiðarból. Ætlunin er að halda því nafni um þennan reit.
Útivist hóf vinnu í Heiðarbóli fimmtudaginn 24. september þegar fjölmennur hópur félaga í Útivist safnaðist saman við Waldorfskólann í Lækjarbotnum og gekk upp og yfir Selfjall að Heiðarbóli til að kynna sér svæðið, huga að skipulagningu til framtíðar og gróðursetja trjáplöntur. Kristinn H. Þorsteinsson frá Skógræktarfélagi Kópavogs tók á móti göngufólki með skóflur og trjáplöntur og var félögum til handleiðslu. Að gömlum og góðum sið var síðan boðið upp á kaffi og kleinur.
Á skógræktarsvæðinu í Selfjalli í Lækjabotnum eru reitir sem félög fengu úthlutað fyrir nokkrum árum til að stunda trjárækt. Þau félög sem um ræðir eru Rótarýklúbbur Kópavogs og Soroptimistaklúbbur Kópavogs. Á síðasta ári fékk Lionsklúbburinn úthlutað reit og það var sannarlega glatt á hjalla 26. ágúst þegar Eirarkonur mættu í Selfjall og plöntuðu fyrstu trjánum í nýja lundinn en niður fór fallegt og veglegt linditré ásamt fjölda birki- og reynitrjáa. Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs og Þráinn Gíslason skógræktarnemi aðstoðuðu Eirarkonur og héldu uppi fræðslu á staðnum.
Í ár fengu Kiwanisklúbburinn Eldey og Rótarýklúbburinn Borgir úthlutað reit. Fleiri félög hafa sótt um reit og verða umsóknir þeirra afgreiddar á næstunni.
Á síðasta ári tóku Skógræktin og Landgræðslan höndum saman og óskuðu eftir stuðningi landsmanna við að breiða út birkiskóga landsins. Kópavogsbær og Skógræktarfélag Kópavogs tóku að sér að annast sáningu á öllu birkifræi sem safnaðist á höfuðborgarsvæðinu og sá því í skógræktarsvæði í Selfjalli í Lækjarbotnum sem er í umsjón Skógræktarfélags Kópavogs. Fulltrúi Kópavogsbæjar var Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri og fulltrúi Skógræktarfélags Kópavogs Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri félagsins. Lagt var fram fyrirkomulag sáningarinnar sem byggðist á því að bjóða almenningi að taka þátt í sáningunni og reyna að fá sem flesta til að leggja þessu lið. Formlegt upphaf sáninga í Selfjalli var 25. september en þá sáði bæjarstjóri Kópavogs birkifræjum með aðstoð nokkra barna úr Waldorfskólanum í Lækjarbotnum og fleirum. Í kjölfarið var almenningi var boðin þátttaka laugardagana 26. september og 3. október. Því miður þá rigndi mikið báða dagana skömmu áður en frædreifing hófst og hefur það án efa eitthvað dregið úr þátttöku. Alls tóku um 90 manns þátt í birkisáningum í Selfjalli haustið 2020. Í undirbúningi var að auglýsa og bjóða upp á áframhaldandi sáningar í október og var þegar búið að tryggja aðkomu fyrirtækja og félagasamtaka. Því miður sáum við okkur ekki fært að halda áfram og verkefninu var því frestað fram á vor þar sem samfélagið var ekki á góðum stað vegna Covid.
Verkefnið um söfnun og sáningu á birkifræi 2020 vakti mikla athygli og náði eyrum fjölmiðla. Landgræðslan og Skógræktin hafa leitað til Skógræktarfélags Kópavogs um að leiða þetta verkefni áfram á landsvísu á árinu 2021 og um leið að vinna að því að festa verkefnið í sessi til framtíðar. Vonandi verður birkiverkefnið áfram viðvarandi verkefni og fastur liður í samstarfi Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs. Verkefnið fellur einkar vel að Heimsmarkmiðunum, sem er yfirstefna Kópavogsbæjar. Þessir aðilar myndu hvert haust standa fyrir söfnun birkifræja, t.d. meðal almennings og grunnskólabarna og standa fyrir sáningum vor og haust.
Aðfaranótt 24. október var gengið hér í Guðmundarlundi berserksgang. Margt var brotið og bramlað, til að mynda öskutunnur, bekkir og borð, salerniskassar og margt fleira. Tjónið var metið á 700 þúsund krónur. Tryggingar náðu ekki yfir öskutunnur, bekki og borð heldur eingöngu það sem eyðilagt var í salernishúsi. Tryggingafélagið VÍS sá aumur á Skógræktarfélaginu og bætti félaginu skaðann. Terra gaf félaginu góðan afslátt og þannig tókst okkur að kaupa betri tunnur og öflugri bekki og borð. Það hlýnar öllum um hjartarætur að finna slíka velvild í garð félagsins.
Hugmyndasöfnunin „Okkar Kópavogur“ var haldin í þriðja sinn 2019 á vegum Kópavogsbæjar. Alls komust 34 hugmyndir af samtals 100 áfram í rafræna kosningu og hlaut tillaga um leiktæki í Guðmundarlundi náð fyrir augum bæjarbúa. Í haust voru sett upp ný og skemmtileg leiktæki í Guðmundarlundi sem falla vel að skógarumhverfinu. Mikil ánægja er með þessi leiktæki og er mikil ásókn í þau.
Þann 25. september var farin fræðsluganga með félaga í Rótarýklúbbi Reykjavíkur – Breiðholt.
Um var að ræða haustferð klúbbsins og var gengið um Meltungureitinn í Fossvogsdalnum í Kópavogi og þar var meðal annars skoðaður Rósagarðurinn, Ávaxtagarðurinn og Yndisgarðurinn. Fararstjóri í ferðinni var framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs.
Fossá í Hvalfirði er skógræktarjörð sem Skógræktarfélag Kópavogs á til helminga á móti Skógræktarfélögum í Mosfellsbæ, á Kjalarnesi og í Kjósarhreppi en þau félög skipta á milli sín hinum helmingi jarðarinnar.
Ár hvert er félagsmönnum skógræktarfélaganna sem og öðrum boðið að mæta um tvær helgar og höggva eigið jólatré gegn sanngjörnu gjaldi. Skógræktarfélag Kópavogs hefur mannað aðra helgina á móti hinum félögunum. Þá hafa félagsmenn Skógræktarfélag Kópavogs fellt hærri tré og eru þau meðal annars seld til Kópavogsbæjar sem torgtré. Í ár voru færri torgtré tekin á Fossá því nú eru að falla til við grisjun falleg tré í Lækjarbotnalandi og verður svo áfram um einhver ár ef haldið verður vel á spöðunum og hugað áfram að umhirðu skógarreitanna.
Í desember fór Skógræktarfélag Kópavogs í samstarf við fyrirtækið Jólasveinar.is. Grýla, Leppalúði, Hurðaskellir og Skjóða voru í Guðmundarlundi í desember og skemmtu ungum sem öldnum. Um var að ræða tæplega klukkutíma langa sýningu þar sem áhorfendur gengu í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum og hittu á ferðum sínum fyrrgreindar persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga. Sýningar þessar vöktu mikla athygli. Guðmundarlundur var bókstaflega fullur af fólki út úr hliði dag eftir dag. Við hjá Skógræktarfélagi Kópavogs lögðumst í þá vinnu að skrá og fylgjast með umferð fólks um lundinn í desember og niðurstaða talningar er að við vitum með fullri vissu að um 6.500 manns komu í Guðmundarlund og höfum sterkan grun um að við þá tölu megi bæta vel yfir 1.000 manns. Þá eru ótaldir þeir aðilar sem nýta sér Vatnsendaheiðina ofan Guðmundarlundar til útivistar. Jólasveinar.is hafa mikinn áhuga á að vera áfram í samstarfi við Skógræktarfélagið um að setja upp leikverk tengt jólum í desember og munum við hjá Skógræktarfélaginu ganga til viðræðna með opnum hug.
Stjórnin hefur kannað lauslega möguleika á að setja upp teljara til talningar á fólki og ökutækjum við Guðmundarlund en slíkar talningar hjálpa mikið til við skipulag og vinnu við svæðið þegar fjöldinn er orðin eins mikill og raun ber vitni.
Sett var upp ljósum skreytt jólatré á flötina í Guðmundarlundi fyrir fyrstu helgi í aðventu og hundruð skólabarna sóttu lundinn heim þar sem dansað var kringum jólatréð og sungið jólalög með Bólu og jólasveinunum svo undir tók í fjöllum. Þessi skemmtilega tilraun tókst vel en með tilliti til þess að mikið vatn getur safnast saman á flötunum þá verður án efa skoðað hvort flötur sé á að halda þessu skemmtilega verkefni áfram í einhverri mynd.
Árið 2021 leit dagsins ljós og var þá hvergi hvítan díl að sjá. Veturinn var snjóléttur og vindur oft hægur. Gróður kom misgóður undan vetri og var helst að finna skemmdir á sígrænum runnum. Jörð hristist, eldur kom úr jörðu í næsta nágrenni við okkur og Covidið truflaði alla starfsemi lengst framan af.
Notkun á grillaðstöðu og á húsi okkar hér í Leiðarenda var hverfandi enda var veturinn þannig að það var verið að panta og síðan afpanta, panta og afpanta.
Síðust dagar hafa þó verið viðburðaríkir því að það má með sönnu segja að Guðmundarlundur hafi heillað unga framhaldsskólanemendur sem flykktust hingað og nutu þess að drekka ýmsa drykki, æla, brjóta flöskur og spýta munntóbakspúðum um allar koppagrundir. Þá þurftu einhverjir óþroskaðir einstaklingar að sparka í klósettkassa í salernishúsinu og snúa við bekkjum og borðum svo eitthvað sé nefnt.
Minna fór fyrir fræðslumálum en vonir stóðu til. Í apríl fór framkvæmdastjóri félagsins í heimsókn til Lionsklúbbsins Eir og flutti fræðsluerindi um gróðurrækt. Þann 5. maí komu félagar í Útivist saman í Heiðarbóli í Selfjalli og gróðursettu undir leiðsögn.
Sumarstarfsmenn í vinnu hjá Skógræktarfélagi Kópavogs hófu flestir störf mánudaginn 24. maí en í sumar er gert ráð fyrir um 50 stöðugildum. Það sem er óvenjulegt að þessu sinni er hversu margir af erlendu bergi brotnir verða við vinnu í sumar en það er meirihluti. Meðalaldur hefur sjaldan ef nokkru sinni verið hærri og aldrei verið töluð jafn tungumál og nú.
Þurrkur og skraufaþurr gróður hafa gert mörgum lífið leitt undanfarnar vikur. Sinueldar hafa loguð víða meðal annars á höfuðborgarsvæðinu. Eftir mikla bruna í Heiðmörk kviknaði eldur við bílastæðið við Guðmundarlund þann 10. maí og brann um einn og hálfur hektari. Það fór betur en á horfðist því vegur sem þverar svæðið þar sem bruninn var hægði á framskriði eldsins og þegar slökkvilið kom náðu þeir fljótt tökum á eldinum og komu í veg fyrir að hann breiddist frekar út. Mikill hálmur af gömlum lúpínustönglum sem hefur hlaðist upp með tímanum í lúpínubreiðum er mikill eldsmatur og það sýndi sig þarna enda varð eldhafið mikið og hljóp hratt yfir. Trjágróðurinn sem skemmdist var stafafura, birki, gulvíðir og loðvíðir en heilt á litið telst skaði af brunanum ekki mikill enda svæðið ekki stórt. Hættustig vegna hættu á gróðureldum var lýst yfir daginn eftir eða þann 11. maí og er enn virkt. Þrátt fyrir nokkra úrkomu undanfarna daga hefur gróður ekki náð blotna nema rétt á yfirborði og þegar sólargeislar náðu að brjótast fram á ný varð gróður skraufaþurr á augabragði.
Við erum að sjá fyrir endann á þessu þurra tímabili því framundan er væta og þá mun græn slikja færast yfir landið og allt jarðlíf taka stakkaskiptum.
Það er ljúfur vorboði ár hvert þegar börn frá grunnskólum Kópavogs mæta í Skólaskóga í Vatnsendaheiði til að gróðursetja í reiti sína. Lindarskóli og Smáraskóli riðu á vaðið í dag og mættu um 90 börn ´til að gróðusetja tré. Næstu daga mun mikill fjöldi barna taka þátt í að rækta land sér og öðrum til yndis og ánægju.
Framundan eru því spennandi tímar með kraftmiklu og áhugasömu fólki.
Þótt margt hafi verið öðruvísi en vonir stóðu til þá hefur tímabilið frá síðasta aðalfundi í heild sinni verið gott. Það er margt í pípunum og að mörgu að huga. Þessa stundina er verið að ganga frá skógræktaráætlun fyrir Lakheiði í Lækjarbotnalandi og verður hún kynnt á félagsfundi hjá félaginu fyrr en seinna. Þarna liggja tækifæri fyrir Skógræktarfélagið til að fá verkefni og eflast. Það þarf að hlúa betur að Hermannsgarði og koma upp merkingum svo gestir og gangandi geti fræðst um hinar ýmsu tegundir fjölæringa í garðinum. Það hefur líka verið rætt að koma upp merkingum við ólík tré í Guðmundarlundi þar sem fram koma grunn upplýsingar um viðkomandi tegund. Þá eru skilti og merkingar á bílastæði farin að láta á sjá og þarfnast endurnýjunar.
Á borðinu liggja ýmsar hugmyndir um fræðslustarfsemi félagsins sem verður hugað að um leið og tækifæri gefst. Verkefnin eru mörg og margvísleg og því þörf á að meta stöðu félagsins og huga betur að hvar við stöndum því áherslur og starfsaðferðir Skógræktarfélags Kópavogs hafa breyst í takt við samfélagið í þau 50 ár sem félagið hefur starfað.
Stjórn Skógræktarfélags Kópavogs þakkar öllum fjölmörgu aðilum sem stutt hafa félagið á einn eða annan hátt.
Kristján Jónasson
Formaður Skógræktarfélags Kópavog
===========================================================================
Árskýrsla Fossá, skógræktarfélagfyrir árin 2019 og 2020
Fossá í Hvalfirði er 1.100 hektara skógræktarjörð í eigu Skógræktarfélags Kópavogs, sem á helming jarðarinnar á móti Skógræktarfélögunum í Mosfellsbæ, á Kjalarnesi og í Kjósahrepps. Félagið er rekið á eigin kennitölu og á Skógræktarfélag Kópavogs þrjá fulltrúa í stjórn félagsins en hvert hinna félaganna 1 fulltrúa.
Aðalfundir félagsins voru haldnir 21. mars 2019 og sá síðari 15. september 2020.
Stjórn félagsins er þannig skipuð á árinu 2019 – 2020
Frá skógræktarfélagi Kópavogs:
· Jón Jakob Jóhannesson - formaður
· Karl M. Kristjánsson – meðstjórnandi
· Kristinn H. Þorsteinsson – meðstjórnandi
Frá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar:
· Bjarki Þór Kjartansson – gjaldkeri
Frá Skógræktarfélagi Kjalnesinga:
· Baldvin Grétarsson – ritari
Frá Skógræktarfélagi Kjósahrepps:
· Kristján Oddsson – meðstjórnandi
Það helsta sem gerðist á árinu 2019 að gróðursettar voru 660 plöntur sem íbætur í fjallið ofarlega og sunnarlega á gisið svæði. Vorið 2020 kom ósk frá Fetar, landssamtökum ferðaþjónustufyrirtækja í heilsárs-ferðaþjónustu á hálendinu um að fá að gróðursetja í land Fossá en félagið var þá að leita sér að landi til að koma saman, gróðursetja og kolefnisjafna faratækin sem þeir aka um á í atvinnuskyni. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs tók á móti hópnum með plöntur og verkfæri og leiðbeindi við gróðursetningar. Um haustið komu saman fáeinir sjálfboðaliðar og gróðursettu greni sem vonandi eiga eftir að nýtast sem jólatré þegar fram líða tímar og önnur fá það hlutverk að binda það sem binda þarf.
Alls voru gróðursettar á Fossá 3000 greniplöntur árið 2020.
Grindarhlið var sett á veginn upp að Eystri Fossá og greiddi Fossárfélagið 50 % af kosnaði á móti eiganda Eystri Fossá.
Ljósleiðari var lagður um land Fossár og voru sett upp tengibox beggja vegna ár sem geta nýst eigendum á svæðinu.
Gert var tilboð í sumarhús Félags foreldra samtaka fatlaðra á Fossá í október 2019 að upphæð 4. milljónir og var tilboðinu tekið. Fyrir tilboð höfðu stjórnarmenn í Fossárfélaginu ásamt öðrum farið nokkrar ferðir til að skoða húsið og meta ástand þess. Töldu menn að það væri í þokkalegu ástandi og þess virði að kaupa það og lagfæra. Húsið var þrífið og margt fór á haugana sem ónýtt var eins og dýnur, teppi, gluggatjöld og ískápur með talsverð loðnum og illa þefandi mat. Fljótlega þarf að huga að gleri og gluggum, bera á húsið og fleira. Haustið 2020 var sett upp varmadæla í húsinu.
Jólatrjáasala fór fram í desember bæði 2019 og 2020 sem fyrr og stóðu félagar vaktina tvær helgar. Skógræktarfélag Kópavogs annaðist sölu trjáa aðra helgina en hin félögin deildu með sér hinni helginni. Gekk salan þokkalega, sérstaklega í desember 2020.
Farnar voru ferðir á Fossá bæði árin til að velja torgtré fyrir Kópavogsbæ. Trén voru síðan felld og flutt í Kópavog. Heldur fækkaði töku torg trjáa á Fossá 2020 því það hafa verið að koma upp vænleg tré í Lækjarbotnum og verður svo áfram ef félagið heldur vel á spöðunum og annast grisjun en flutningur trjáa er mun hagstæðari frá Lækjarbotnum en frá Fossá.
Breytingar urðu á stjórn félagsins á síðasta aðlafundi 15. september 2020. Jón Jakob Jóhannesson og Baldvin Grétarsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi og er þeim þakkað fyrir vel unnin störf í Þágu Fossá.
Á aðalfundinum var kjörin ný stjórn og er hún þannig skipuð fyrir árin 2020 – 2021
Frá skógræktarfélagi Kópavogs
· Kristinn H. Þorsteinsson – formaður
· Karl M. Kristjánsson – meðstjórnandi
· Kristján Jónasson - Varaformaður
Frá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar:
· Bjarki Þór Kjartansson – gjaldkeri
Frá Skógræktarfélagi Kjósahrepps:
· Kristján Oddsson – meðstjórnandi
Frá Skógræktarfélagi Kjalnesinga:
· Hafa ekki lagt fram í stjórn
Fh. Fossá, Skógrækrafélags
Kristinn H. Þorsteinsson formaður.