Laugardaginn 5. september stendur Náttúrusafn Kópavogs í samstarfi við Skógræktarfélag Kópavogs og Sveppafélagið fyrir fræðslu frá kl. 11-13 í Guðmundarlundi.
Við hittumst við Gamla húsið (húsið næst bílastæðinu) kl. 11 þaðan sem Jóhannes Bjarki Urbancic, forsvarsmaður Sveppafélagsins og Hlynur Steinsson sérfræðingur hjá Náttúrusafninu leiða fræðsluna.
Takið með körfu eða annað hart ílát undri sveppina og lítinn hníf eða vasahníf til að hreinsa þá. Gaman er fyrir þau sem eiga að hafa sveppabók og stækkunargler meðferðis.
Viðburðurinn hentar öllum aldri og er frábært tækifæri fyrir fjölskylduna til samveru og útivistar. Komið klædd eftir veðri og í góðum skóm.
Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin!
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af Menningar og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Um Sveppafélagið:
Sveppafélagið var stofnað í febrúar 2025 í þeim tilgangi að vera umboðmaður og bakhjarl sveppa. Það felur í sér að vekja athygli á málefnum sveppa, styðja við sjálfbæra nýtingu þeirra, auka við þekkingu á sveppum og tala fyrir verndun þeirra þar sem við á.
