Maðurinn sem spilar í görðum, skógum, lautum, við sjóinn og á öðrum fallegum og áhugaverðum stöðum mætti í Guðmundarlund í Kópavogi sunnudaginn 23. ágúst. Hann kom, sá og sigraði.
Mugison fer ekki alltaf troðnar slóðir í tónleikahaldi sínu.
Dagana fyrir auglýstan viðburð var veðurspáin ekki góð, það stefndi í rigningu og aftur rigningu - Það gekk ekki eftir.
Þegar Mugison steig á svið í Guðmundarlundi brast á bongóblíða. Seiðandi hljómarnir frá Mugison svifu á milli trjánna í Guðmundarlundi og fylltu hvern krók og kima af einstakri stemningu. Skógurinn myndaði magnaða umgjörð og gaf staðnum töfrablæ.
Undir lokin sté hans betri helmingur, Rúna Esradóttir, á svið og söng með Mugison við góðar undirtektir viðstaddra.
Takk, Mugison og Rúna, þið eigið heiður skilið fyrir framlag ykkar.
Skógar fá annan blæ þegar tónlistin og náttúran renna saman í eitt og skapa ógleymanlegar töfrastundir. Þessi einstaka upplifun, sem Mugison og Rúna færðu gestum í Guðmundarlundi, sýnir hvernig listin getur breytt rigningu í blíðu og magnað upp skóginn enn frekar sem töfrastað.
