GUÐMUNDUR Í GUÐMUNDARLUNDI Í GULLI OG GRÆNUM SKÓGUM.

Gull og grænir skógar á Rás 1 eru bráðskemmtilegir og einstaklega fróðlegir þættir sem fjalla um alls kyns gróður frá ólíkum og oft óvæntum sjónarhornum. Bryndís Björgvinsdóttir hefur unnið þessa þætti af miklum sóma og fagmennsku og hefur henni tekist afar vel að miðla efninu á lifandi og heillandi hátt.

Einn af fastagestum þáttanna er Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og ræktunarstjóri gróðrarstöðvarinnar Þöll.

Seinasta föstudag, þann 13. nóvember, var fjallað um tré sem mótuðu mannkynssöguna. Gestir þáttarins voru Steinar, sagnfræðingurinn Stefán Pálsson og Guðmundur Árland Hannesson, starfsmaður Skógræktarfélags Kópavogs.

Guðmundur sagði meðal annars frá eik sem átti þátt í að bjarga enska konungdæminu og svokölluðum frelsistrjám sem gróðursett voru sem tákn uppreisnar gegn konungsvaldi í Norður-Ameríku og Frakklandi. Þátturinn er aðgengilegur á spilara RÚV og á Spotify. Hlekkurinn á þættinum er hér:

https://www.ruv.is/utvarp/spila/gull-og-graenir-skogar/39338/bn505r

Guðmundur verður einnig meðal gesta í þættinum í dag, föstudaginn 20. nóvember, en að þessu sinni verður sjónum beint að eðallauftrjám og jólatrjám. Endilega leggið eyrun við!