Undirbúningur fyrir Ævintýri í Jólaskógi er á lokametrunum.
Þegar rökkva tekur á laugardaginn 21. nóvember lifnar Jólaskógurinn við.
Töfrandi vasaljósaganga fyrir alla fjölskylduna í Guðmundarlundi.
Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng leikhúsupplifun undir berum himni þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum. Náttúran, myrkrið og jólaljósin verða hluti af leiksviðinu og enginn veit alveg hvað bíður handan við næsta tré.
Á leiðinni verða á vegi þeirra kunnuglegar persónur úr uppáhalds jólafjölskyldu okkar Íslendinga – Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og tröllasystkini þeirra.
Allar upplýsingar um þetta stórkostlega leikverk er að finna hér á eftirfarandi slóð. Ævintýri í Jólaskógi
