FRAMKVÆMDASTJÓRI Á FARALDSFÆTI - FRÆÐSLUERINDI ÞANN 7. 0KT

Miðvikudaginn 7. október nk. flytur Kristinn H. Þorsteinsson fræðsluerindi hjá Lionsklúbbnum Víðarr.  Dagskráin hefst klukkan 18.00 í Lionssalnum að Hlíðasmára 14.

Nú stendur yfir áratugur Sameinuðu þjóðanna um endurheimt og verndun vistkerfa um allan heim, í þágu fólks og náttúru. Það er í senn metnaðarfullt og mikilvægt verkefni að auka verulega útbreiðslu birkiskóga og birkikjarrs, en nú er birki aðeins að finna á um 2% af flatarmáli landsins.

Í erindi ætlar Kristinn að stikla á stóru, í máli og myndum, um mikilvægi jarðvegsverndar, endurheimt vistkerfa og kolefnisbindingu með birki. Jafnframt mun hann kynna landsátakið „Söfnum og sáum“ sem er  sem er hluti af svonefndri Bonn-áskorun
Kristinn er verkefnastjóri landsátaksins og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra um ræktun og önnur umhverfismál, haft umsjón með sjónvarpsþáttum og skrifað greinar í blöð og tímarit.