AÐALFUNDUR SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1.-3. SEPTEMBER

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands er haldinn að hausti til ár hvert. Á fundinum er kosið í stjórn félagsins, lagabreytingar afgreiddar þegar það á við og fjallað um margvísleg málefni sem snerta skógræktarfélögin í heild eða skógrækt almennt.

Einstök skógræktarfélög skiptast á að vera gestgjafar fundarins og því er fundarstaður breytilegur milli ára. Gefur það skógræktarfélögunum tækifæri til að kynna starfsemi síns félags og fræðast um starfsemi annarra félaga. Aðalfundurinn er einnig mikilvægur félagslegur vettvangur, þar sem þátttakendum gefst kostur á að viðhalda og endurnýja kynni við gamla og nýja félaga innan skógræktarhreyfingarinnar.

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands 2023 verður haldinn á Patreksfirði dagana 1.-3. september 2023 og eru Skógræktarfélög Patreksfjarðar, Bíldudals og Tálknafjarðar gestgjafar fundarins.

Þeir félagsmenn Skógræktarfélags Kópavogs sem hafa áhuga á að sækja fundinn eða fá nánari upplýsingar geta sent póst á Skógræktarfélag Kópavogs -
skogkop@gmail.com