„Lífið í skóginum“ þema Fagráðstefnu skógræktar 2026
Fagráðstefna skógræktar 2026 fer fram á Stracta Hótel Hellu 18. og 19. mars. Þema fyrri dags ráðstefnunnar að þessu sinni verður lífið í skóginum. Seinni daginn verða fjölbreytt erindi um ýmis skógarmálefni.
Dagskrá fagráðstefnunnar hefur ekki verið birt en það mun væntanlega gerast fljótlega og verður birt á eftirfarandi slóð.
